Jósepsdalur
Jósepsdalur
Jósepsdalur
27. September 2023
Örstutt ferð inn i Jósepsdal i roki og rigningu
Jósepsdalur er dalverpi suðaustan undir Vífilsfelli á móts við Litlu Kaffistofuna. Jósepsdalur er undir Ólafsskarði en um það var gömul alfaraleið úr Ölfusi til Reykjavíkur. Samkvæmt munnmælum átti tröllkona að hafa búið þar í helli fyrr á öldum. Þjóðsaga um Jósepsdal hermir að í dalnum hafi búið maður sá er Jósep hét og verið smiður mikill. Hafði hann svo óguðlegan munnsöfnuð, blót og formælingar að bærinn sökk.
Í Jósepsdal var skíðaskáli Ármanns og var dalurinn fjölsóttur á vetrum fyrri hluta 20. aldar en það hefur nú lagst af. Í dag er Jósepsdalurinn aðallega notaður sem leiksvæði fyrir torfæruhjól, klettaklifrara og göngufólk. Skemmtilegt er að ganga dalinn á enda og í dalnum er að finna marga steina í hlíðunum sem eru vinsælir til klettaklifurs.